fimmtudagur, apríl 02, 2009
þriðjudagur, janúar 06, 2009
Góður dagur :)
Einn einn afmælisdagurinn í dag. Orðin 29... mæ ó mæ... tímin líður svo sannarlega hratt. Bara ár í þrítugt! Jiii... hvað maður er orðinn fullorðinn, en það er bara gott og eðlilegt mál að verða árinu eldri. Nú er bara að njóta þess að vera orðin 29 með öllum þeim lystisemdum sem því fylgir.. haha....
Átti góðan afmælisdag. Fór í vinnu, kláraði mín verk þar og fór svo á Selfoss í mat hjá sys með fjölskyldunni. Fékk góðan mat, eftirrétt og horfði svo á rosa flotta flugeldasýningu. Góð stund í góðum hópi.
Fékk svo fullt af kveðjum í dag, alltaf gaman þegar einhver man eftir manni - takk fyrir þær :-)

miðvikudagur, desember 24, 2008
~~~~~~~~~~~~
Óska ykkur öllum
Gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári
Vona að þið hafið það gott
yfir hátíðirnar
Jólakveðja
Katrín
~~~~~~~~~~~
mánudagur, desember 15, 2008
Ég hlakka svo til, ég hlakka svo til, ég hlakka...
Eftir rúmar 6 klukkustundir verð ég búin í prófum.
Oh.... vildi að ég gæti bara hraðspólað smá og klukkan væri 18:00 :-) En það er ekki svo langt þangað til, alveg hægt að bíða.
Mikið ætla ég að njóta þess að slappa af í kvöld.
Aldrei að vita nema maður skelli sér bara í pottinn í kvöld með einn kaldann. Held það væri sko ekki svo vitlaus hugmynd.
Jeij!

laugardagur, desember 13, 2008
Bara 2 dagar eftir
Á bara eftir að læra í tvo daga og taka eitt "lítið" próf og þá verður prófatíðin þessa önnina búin!
Jahúúú..... Mikið verður það nú ljúft.
Hef nú svosem ekki frá miklu að segja. Síðustu dagar og vikur reyndar, hafa verið eins. Vinna, borða, sofa og læra. Er komin með algjört ógeð á því sem kallast lærdómur svo að sjónvarpsgláp, netið og að ógleymdu "$%&%## facebook (þvílíkur tímaþjófur sem það nú er) hefur verið mun skemmtilegra/áhugaverðara og hafa bækurnar því fengið að finna svolítið fyrir því. Oh.... ég bara nenni ekki meir en það sér nú fyrir endann á þessu, sem betur fer. Þessir síðustu dagar verða teknir á hörkunni.
Að venju hef ég svo sett mér þau fyrirheit um að vera duglegri að læra næstu önn. Held ég verði hreinlega að standa við það í þetta sinn. Því með vinnu dugir víst hangs og skipulagsleysi í náminu víst ekki vel, er alveg búin að læra það (læri allavega eitthvað :o) ). Verð bara að vona það besta - hlýt að ná 'essu.
Að loknum prófum ætla ég að gera ótalmargt. Byrja á því að taka rækilega til, það er orðið frekar ruslaralegt hjá mér. Svo ætla ég að vera óskaplega artí og skella mér á glerlistanámskeið með nokkrum stelpum úr vinnunni og reyna vera skapandi (komast aðeins úr rökhugsanaferlinu sem ég er búin að vera í) og búa til eitthvað fallegt. Að auki á ég eftir að gera nokkra smávægilega hluti eins og að skrifa jólakortin, kaupa jólagjafirnar og pakka þeim inn og þar af leiðandi fara í óteljandi ferðir í Smáralind, Kringluna og verslanir hér og þar, hitta saumó í jóladinner, vinna fullt og komast í smá jólaskap. Já það verður sko nóg að gera. Það sem mig langar samt mest að gera þessa stundina er að kíkja eitthvað út á lífið, skella mér í glamúrgallan, fá mér kokteil og eiga skemmtilega stund með vinkonunum. Vonandi verður nú eitthvað af því á næstunni, vill ekki einhver kíkja á smá tjútt? :)
En nóg af væli í þetta sinn. Nú er smá quality time við TV-ið.

miðvikudagur, desember 03, 2008
Fyrsta prófi í dag....
Eftir tæpar 4 klst. verð ég byrjuð að reyna leysa það. Markaðsfræðin er þraut dagsins í þetta sinn. Skemmtilegt fag - en allt of mikið af stefnum og svoleiðis dóti sem þarf að muna/læra. Fer bara allt í einn hrærigraut.
Úff... Finnst ég búin að gleyma öllu sem ég búin að vera reyna troða inn í kollinn þessa síðustu daga. Sji....
Anda inn... anda út.....

laugardagur, nóvember 22, 2008
Laugardagskvöld!
Mig langar út í kvöld.
Út að djamma og hafa það skemmtilegt.
En það er ekki í boði. Er ströng við sjálfa mig og það verður ekkert tjútt og fyllerí fyrr en að prófum lýkur. Er ekki einhver geim í eitthvað skemmtilegt 15. des.? Það er nú að vísu mánudagur, svo alvöru próflokatjútt verður að bíða eitthvað örlítið lengur.
Á meðan þá verð ég bara að láta kartöfluflögur og pepsi MAX duga (og Bailey's með bókhaldinu - til að gera það bærilegra).