fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Letinginn ég...

huh... er að bíða eftir að fara í dæmatíma í efnagreiningu og bara nenni ekki að gera neitt... held ég sé komin með "Skólus letisus" Get ekki beðið eftir að það komi helgi, frí í vinnunni á laugardaginn þannig að það verður sko sofið úúúút! Svo bara djamm um kvöldið, ekki slæmt :)

Annars er lítið að frétta af mér. Ég er búin að eignast sambýling.... svona næstu dagana, en Tryggvi bró er í Reykjavíkinni og fær að gista hjá stóru sys. Atli lánaði okkur síðan tölvuna sína þannig að núna fer enn minna fyrir lærdóminum heldur en áður og er bara glápt á nýjar bíómyndir í tölvunni.... semsagt letilíf og var ekki á það bætandi.

Svo vil ég óska Hafdísi til hamingju með nýju vinnuna :)

till next
ble...