þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Sumarprófin... Hluti I

Fyrst að enginn bauð sig fram í að taka fyrir mig efnafræðiprófið í dag þá sá ég mig tilneydda til að fara sjálf. Þar sem ég er frekar lítill aðdáandi þessa fags þá býst ég við að árangurinn verði jafn mikill og áhuginn hefur verið fyrir þessu... En kva, græt það nú ekki!

Næsta atrenna er svo við þróunarfræðiskrímslið, sem ég tapaði fyrir í vor, eftir langan og hatramman slag! Vona bara að slagurinn gangi betur í þetta sinn en ef einhver býður sig fram í slaginn er það vel þegið :o)

Svo styttist bara í djammið, jahú!!!
adios
JK