mánudagur, september 27, 2004

Fjöllin hafa vakað...

...í þúsund ár!
Komin heim frá "útlöndum" (Akureyri)! Þessi ferð var hreint út sagt snilld. Það má segja að þema helgarinnar hafi verið A-L-K-Ó-H-Ó-L. Okkur skvízunum tókst með stakri snilld okkar að fylla ísskápinn af bjór og öðru búsi og eiginlega tæma hann líka... Segir það kannski nokkuð um hversu vel við skemmtum okkur og héldum við allar heilsu þrátt fyrir það, engin stefnumót við herra Gustavsberg eða svoleiðis vesen.

Ferðin norður á bóginn gekk þrusu vel. Ninnzí setti sig í hlutverk bílstjóra meðan ég lék aðstoðarökumann og íhlaupa DJ, á meðan Dóra & Hafdís sötruðu bjórinn sinn. Brandararnir flugu og mikið hlegið, flaug meðal annars einn sem átti nú bara eftir að rætast er leið á ferðina, furðulegt nokk.

Eftir vel heppnaðan laugardag, sem var eytt í búðarráp og lærdóm, já þið lásuð rétt lærdóm, var stillt í djammgírinn. Tekið var við að taka aðeins til í ísskápnum eða réttara sagt tæma hann og tókst mjög vel til. Hápunktur kvöldsins var svo heimsókn í Sjallann á EGO. Játs! hvað það var gaman. Ég og Ninnzí dilluðum okkur eða réttara sagt hentumst til á dansgólfinu í félagsskap eldri manna. Vorum svona soldið out of place þarna þar sem við vorum ekki með sama testesterón level í líkamanum og hinir í kringum okkur, en kva maður lætur það nú ekki aftra sér við að troðast fremst og "dansa" þar. Svo hitti maður fyrir "gamla" kunningja, unga Ísfirðinginn (sem var nú ekkert svo ungur eftir allt saman, hafði elst alveg um 2 ár síðan síðast, þó það hafi verið í apríl!!! do the math) þessar tilviljanir eru alveg ótrúlegar!

Sunnudagurinn var svo frekar svona þreytulegur! Djammið tekur sinn toll, en það var þess virði. Fleiri skemmtilegir hlutir áttu eftir að gerast og tilviljanirnar eftir að verða fleiri, áður en Akureyri var yfirgefin en förum ekkert meira í það hér...

Stelpur! Takk fyrir frábæra ferð. Ég skemmti mér alveg frábærlega!
-p.s. hvað er það deilt með fjórum?

luv
JK