fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Nóg að gera...

...í skólanum þessa dagana, eins og ég er nú búin að minnast á áður! Sé fram á að eyða kvöldinu við fyrirlestrargerð í Öskju í kvöld, jibbí!!! -eða þannig! Handan við hornið bíður svo flutingur á einhverju þvaðri um stofnfrumur, whahúúúú...

Er orðin alveg langþreytt á þessu, langar ekkert meira en að fá góðan nætursvefn gleyma skólanum í eitt kvöld. Enda er planið að gera ekkert næsta föstudagskvöld, bara kúra sig undir teppi yfir TV-inu og hafa það kósý, tja nema einhver myndi bjóða manni á deit ;o) ha ha ha... Laugardagurinn er svo annað mál, því ég er að fara á SÁLARBALL. Gallin er samt sá að það bíða bara ný verkefni eftir að vera gerð á sunnudaginn, verð ábyggilega glæsileg þá með þynnku-goggles-in á!

En, þýðir ekki að hangsa neitt, fyrirlesturinn bíður!
*wish me luck*