mánudagur, mars 28, 2005

Páskarnir...

... eru búnir að vera hinir fínustu!

Búið er að taka ærlegt páskadjamm með stelpunum, beilaði reyndar á Vinina á miðvikudaginn, en skemmti mér bara vel annars staðar í staðinn :o)

Páskafríið sem átti að vera undirlagt lærdómi hefur verið eytt í eitthvað allt annað. Eins og vinnu, djamm og bara almennt hangs heimavið og súkkulaðiát :o) Er núna bara í góðu yfirlæti hjá parentsinu og mamma esskan var meira segja svo góð að hún fór að þrífa car-ið út í rokinu, fyrir elskuna sína. Takk mamma :)

Annars er ég að hugsa um að byrja læra eitthvað, enda ekki seinna vænna þar sem bara 2 dagar eru eftir af fríinu mínu!!!

ADIOS!