þriðjudagur, apríl 19, 2005

Alltaf að spara!

Eða þannig!
Núna er verið að predika voða mikið um hvað allir ættu nú að vera að spara og geyma aurana sína og "eyða" í sparnað.
En allavega sá ég auglýst námskeið í einhverju blaði um hvernig maður ætti nú að fara með peningana og læra að spara og átti þetta að vera eitt kvöld. Hugsaði nú með mér að þetta væri nú sniðugt og hefði maður bara gott af því að fara á svona... þangað til ég las lengra. En þar stóð: Verð: 18.000! Átjánþúsundkrónur!!

Heh... var fljót að læra og ákvað að vera fávís og sleppa að borga þenna 18 þús kall. Kannski maður spari nú á því... huh...