laugardagur, desember 31, 2005

Síðasti dagurinn...

13 klukkutímar og 9 mínutur eftir af árinu 2005!
Finnst ég bara nýbúin að fagna árinu en það hefur víst þotið framhjá...

Er að eyða síðasta degi ársins í vinnunni, vííí... Þarf reyndar bara að vera fram að hádegi svo þetta sleppur alveg. Plana svo að eyða áramótunum í rólegheitum í sveitinni. Ætli aldurinn sé bar ekki farinn að segja eitthvað til sín!

Annars hef ég bara haft það gott yfir hátíðirnar. Hugsa ég geti alveg kallað jólin át jólin miklu... úff.. ég var bara pakksödd öll jólin, en alltaf var nú hægt að finna pláss fyrir einn konfektmola í viðbót ;) Það er bara ekki hægt að fá nóg af súkkulaði.

En vinnan bíður!

Segi bara

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA, BAUNIRNAR MÍNAR, OG SKEMMTIÐ YKKUR ÆRLEGA Í KVÖLD :o)

Sjáumst svo bara hress á nýju ári!
SKÁL!