Ég fer í fríið...
....ég fer í fríið, ég feeeer í fríið.... damm damm damm daaammmm....
Ég er reyndar ekkert að fara í neitt frí. Þetta lag er bara búið að hljóma í hausnum á mér í dag, og núna farið þið sem lesið þetta líka að syngja "ég fer í fríið, ég fer í fríið..." wah ha ha ha...
Talandi um frí þá eru nú Jónína (afmælisstelpa dagsins) og litla sys báðar að fara í frí til útlanda. Ninns ætlar að taka smá trylling í búðunum í Lon og Don en systirin ætlar að þeysast til Skandinavíu og gera víðreisn þar. Get nú ekki sagt annað en ég öfundi þær nú smá (nema sys af ferðalaginu sjálfu -hún fer með bát! Gubb) og væri ég meira en lítið til í að skella mér í smá ferðalag til úgglanda. En maður getur nú ekki gert allt, "nýr" bíll er á things to do listanum í ár svo útlönd verða eitthvað að bíða, allavega í bili. Aldrei að vita hvað maður gerir í haust, það er allavega orðið nóg af fólki sem ég þekki sem flýr klakann svo einhverja get ég nú heimsótt.
Svo veit ég barasta ekki baun hvað ég á af mér að gera í sumarfríinu mínu eða hvenær ég ætla í frí. Ég ætla allavega ekki að sleppa því að taka frí, svo mikið er víst. Ætli sundlaugarnar verði ekki bara aðnjótandi veru minnar í fríinu, 4 vikna sólbað... hvernig hljómar það?
Sé til hvað ég geri og eru allar tillögur vel þegnar.