Laumufarþeginn
Þegar ég hef verið að pakka niður í töskurnar í London, þá hefur einn laumufarþegi stungið sér með í einn af fatabunkunum. Þessi farþegi er þó ekki neitt dýr eða neitt af því taginu heldur einhver leiðinda kvefpúki. Þessi kvefpúki hefur ekkert verið að láta lítið fyrir sér fara síðan ég kom heim, því frá því á miðvikudag hef ég verið með stíflað nef og hausverk (sem var hálf stíflaður líka) og í kjölfarið kom einhver hálsbólga. Náði ég svo toppnum um helgina þegar einhver helv... hósti bættist í fjörið og röddin í mér tók sér frí.
Ég held nú samt að mér sé að takast smá saman að losna við þennan kvefpúka, nefið er ekki jafn stíflað og röddinn hefur lagast eitthvað smávegis en er samt ekki nógu góð, en held áfram að taka svona hóstaköst alveg villt og galið. Vonandi fer þetta bara að lagast sem fyrst, nenni þessu veseni ekki! En ég mætti svosem þakka fyrir að þetta er bara kvef, ekki eitthvað alvarlegra en það. Gæti verið verra!
Ef einhver vill ættleiða eitt lítið "gæludýr" þá bara látið mig vita og ég kem með kvefpúkann um hæl. Hans verður aldeilis ekki saknað.