Afsakið hlé!
Vegna bilunar í bloggheilanum hefur lítið verið um skrif á þessari síðu. Orsök bilunarinnar eru ókunn en þetta virðist þó vera komið í lag, a.m.k. tímabundið. Líklegast þykir þó að eitthvað skammhlaup hafi orðið í bloggheilanum þegar eigandi hans náði þeim áfanga að verða árinu eldri. Á þeim tímamótum varð mjög mikið álag á kerfið þar sem bloggheilinn fór að velta fyrir sér því sem fylgir að vera orðin 25+ enn eina ferðina og er hann farinn að óttast mjög þegar kemur að því að verða 30+ en það styttist óðum í þau merku tímamót. Því hefur verið unnið að því að uppfæra öll kerfi bloggheilans í rétt ár svo hann virki sem best og vonandi á það eftir að duga.
Með vinsemd og virðingu
Kerfisstjórinn
Með vinsemd og virðingu
Kerfisstjórinn
