Freistingar
Ég læt freistast of auðveldlega, er komin með það á hreint. Planið um rólega helgi breyttist örlítið. Endaði bara á því í gærkvöldi að hafa "drykkju" í litla kotinu mínu og já... ég var ekki beinlínis edrú eins og ég hafði ætlað mér uss uss... Fékk líka að gjalda þess og átti stefnumót við "herra Gustavsberg", sælla minninga, hefði nú frekar viljað sleppa því.
Svo virðist bara vera að næstu helgar fari í djamm líka, útskriftarveisla, árshátið HAXA, ammæli Ninnu :o) ætli skólabækurnar fái ekki bara að bíða örlítið lengur... enn eina ferðina, gaman að því ;) maður er bara svo bissí persón!!!