Fööööstudagur :)
jibbí skibbí.... það er kominn föstudagur.. eða réttara föstudagskvöld!
En hvað er ég að gera... bara sit heima og tölvunörrast... uss uss.... Maður ætti nú frekar að vera alvöru háskólanemi og vera á bjórkvöldi niðrí bæ en nei... ég er löt & þreytt í kvöld og er heima að þvo þvott.... yes my life is very exciting :)
Samt verður bætt úr djammleysi kvöldsins á morgun þegar litla skólastelpan ætlar að skella sér á þorrablót í Þorlákshöfn eða "Þoll-lákshöfn" eins og bæjarbörnin segja. Þar skal sko verða skálað, tjúttað og trallað... spurning um hvernig sunnudagurinn eigi eftir að verða, púff... jæja það verða allavega engir leigubílar sem maður verður bílveikur í á leiðinni heim því það verður bara trítlað á blótið & tilbaka ;o)
En ætti maður ekki að fá sér einn öl núna... svona í sárabætur fyrir að vera félagsskítur í kvöld... tuborg gold yum yum
skál og lifið heil!