mánudagur, febrúar 09, 2004

jahérna....

Á týpískum sunnudegi lá ég undir sæng og var að glápa á tv. Sá þá aðeins úr þættinum "Trista & Ryan's wedding" og ákvað að vera lágkúruleg eins og ameríkanarnir og glápa aðeins á þetta og OMG... hvað er málið með bleikt hjá henni.... hún vill bara hafa bleikt alls staðar.... sko bleikt er nú ekkert ljótur litur þannig en öllu má nú ofgera.... svo þegar hún vildi að hann hefði skærbleikt bindi þá duttu nú af mér allar.... aumingja gaurinn er svo in love að hann gerir bara allt sem hún vill en vill greinilega eitthvað annað og á frekar erfitt með að koma því á framfæri. Þetta er samt allt eitthvað svo über skipulagt, hitta the wedding planner, velja stell og bla... ekkert svaka spennandi sjónvarpsefni, en samt þá horfir maður á þetta.. uss..... kannski að það eigi eitthvað djúsí eftir að gerast... samt efa ég það!!!
But well... ætli maður kíki ekki eitthvað aðeins í þessar skólabækur, svona fyrst maður var að kaupa þær....
Þangað til næst
bæjó