miðvikudagur, febrúar 11, 2004

livin' in America

Ja sei sei sei.... endalaus er þessi Kani nú skrítinn... alveg hrikalegar teprur segji ég og skrifa. Sko fyrst verður allt alveg kreisí út af því að þessi Janet Jackson "missir" brjóstið aðeins út úr haldaranum á einhverju super ball dæmi og allir ætla kæra, því hún særir blygðunarkennd þeirra (hver hefur ekki séð brjóst spyr ég nú bara)... eins og þessir kanar hafi ekki bara haft gaman af þessu.... ég meina svo eru þetta ekkert "alvöru brjóst" löngu búið að fylla þetta m. ýmis konar dótarí... maður sér sko margt verra í fréttunum held ég barasta. En já það sem ég ætlaði að tala um var hún Britney venkona.... núna má bara ekki sýna nýja myndbandið hjá litlu saklausu stelpunni á MTV nema á kvöldin... hún er víst of djörf... ég meina, þetta er ekki alveg saklaust.... en djí... Ekki það að mér finnist þetta eitthvað leiðinlegt fyrir grey Britney... þetta er leiðinlegt lag svo okkur er kannski bara öllum gerður greiði með þessu.. samt ansi auðvelt að "fá það á heilann" damn.. hvað ég var hooked á þessu lagi um daginn...