fimmtudagur, febrúar 19, 2004

skólabull

oh.... míns er ekki að nenna læra... Mín bíða skýrslur, heil þrjú stykki sem skila á á morgun og svo verkefni á verkefni ofan... púff... er nú reyndar byrjuð á þessum skýrslum, svo ég er ekki alveg hopeless case. Held að helgin fari bara í að læra, svei mér þá :( verður víst lítið úr djammi enn eina ferðina enn... sem er svosum allt í læ því maður verður að spara. Það er leiðinlegt að vera námsmaður, þarf að spara peninginn, læra og bla.... En vísindaferðirnar eru víst til þess gerðar að maður geti nú sparað... hef nú farið í þær nokkrar og barasta næstum komið út í plús eftir þær, frír bjór og alltaf tilboð á barnum ;) Alltaf gaman af því...

Kannski maður fari bara að kýla vísó af fullum krafti til að geta djammað með góða samvisku að maður sé ekki að eyða aurunum í neina vitleysu... humm.....

En í kvöld verður síðasta skiptið í bili í babó hjá "Badmintonfélaginu Spassarnir" og svo á að fara á kaffihús og já... hafa það bara gott... kannski maður splæsi bara í einn öl því ég drekk ekki kaffi.. he he...
Hvenær ættum við svo að halda Árshátíðina okkar kæru "Spassa-félagar" ;) það var nú gaman í fyrra....

En jæja... skýrslurnar bíða...
ble..