Eitt og annað...
Sæl og bless!
Jæja stoppið í sveitinni var nú stutt. Það var bara brunað aftur í syndabælið, Reykjavík, á laugardagskvöldið beint í "ómenninguna". Svo fyrst að maður var kominn í Reykjavík og laugardagskvöld þá var alveg tilvalið að kíkja aðeins á mannskapinn í bænum. Stoppið var þó frekar stutt, en ágætt samt. Thanks Ninnz 4 da beer ;)
Núna þykist maður svo ætla að verða "betri" manneskja og taka smá hvíld frá skemmtanalífinu og einbeita sér meira að kennslubókunum. En einhvern veginn hef ég það á tilfinniningunni að það eigi ekki eftir að verða... jú... mér skal takast það!!! tja við sjáum bara til hvernig fer... fæst orð hafa minnsta ábyrgð heyrði ég einhvers staðar sagt.
Hvernig líst fólkinu svo á "júróvísíjón" lagið okkar??? Mér finnst það nú vera hálf svona.... ehmmm... væmið barasta! Ættu frekar að rokka þetta aðeins upp og leyfa Jónsa að sýna hvað hann getur!
Síðan var það eitt annað sem ég varð bara að nefna. Ungur maður hefur oft imprað á því við mig að kvenmenn kunni ekki að keyra. Reyndar hefur hann oft haft rétt fyrir sér í þeim málum en ég verð nú að segja að það fyrirfinnast sko líka kallar sem kunna ekki að keyra og þeir eru ekki gamlir kallar með hatta!!!! Lenti sko í því í gær 2 sinnum að lenda fyrir aftan einhverja gaura sem ja.... hreyfðust hægt skulum við bara orða það. Hvað er málið með að kenna einhverjum köllum á rútu í síðdegisumferðinni??? Bara spyr! Lenti fyrir aftan eina solleiðis í gær og komst engan veginn framúr. Gaurinn sem var að læra keyrði svooo hægt að það var komin löööng röð á eftir honum... hann var á minna en 35 sko!!! Ég greip svo tækifærið um leið að komast fram úr honum og horfði svo á hann reyna koma draslinu af stað upp einhverja brekku með halarófuna á eftir sér... he he he
En nóg af bulli í bili
Veit annars einhver um vinnu fyrir mig í sumar??? Er ekki búin að fá neina :(
till next
JK