mánudagur, mars 29, 2004

First time for everything...

Jæja.... detti nú af mér allar dauðar...
á nærri 2 ára ferli mínum í Háskóla Íslands hef ég aldrei gerst svo "djörf" að fara á bókhlöðuna að læra en í dag varð sko breyting á! Miss Ninnz kippti mér bara með sér svo maður sæti ekki einn heima í einhverju eirðarleysi. Svo að hér er ég með bók fyrir framan mig og er sko að lesa í henni. Þannig að núna get ég sagt með góðri samvisku að ég hafi verið að læra... loksins!!! :o) enda á eflaust eftir að gefast nógur tími til þess á næstunni og héðan í frá mun öll athyglin beinast að skólabókum og því tengdu, enda verður maður nú að ná þessum prófum.

Annars hef ég nú bara verið að taka því rólega síðustu daga. Kíkti bara í sveitina um helgina og gerði bókstaflega ekki neitt, var bara að hlaða batteríin eins og sagt er og satt best að segja þá var það bara fínt!! Einhver letipúki að stíða manni kannski? Nei nei... köllum það bara afslappelsi ;)

Ætla halda áfram með lærdóminn meðan ég nenni (sem er ekki oft)
síja
JK