föstudagur, mars 19, 2004

Komin í sveitina....

Já haldiði að ég hafi ekki bara brunað í sveitina í dag! Ákvað svona aðeins að kíkja á fólkið, enda á hún mamma ammæli í dag og tilefni til að kíkja á kellu! "Til hamingju mamma"

Planið er svo að vera hér og "reyna" læra eitthvað... spurning hvernig það á eftir að fara!!! Vonum að maður nái að lesa nokkra stafi ;) en... svo er verið að reyna lokka mann aftur í syndina í höfuðborginni á morgun... spurning hvað maður gerir?!?! væri gaman að kíkja aðeins út á lífið svona áður en lærdómurinn byrjar á fullu!

En verið sæl, ætla gæða mér á ammælistertu mmmm.....