miðvikudagur, mars 10, 2004

Sælt veri fólkið! Það er nú nokkuð liðið síðan ég skrifaði síðast... eigum við bara ekki að afsaka það með því að maður hafi verið að læra ;) he he he... yeah right!

Nú mín skellti sér á árshátíð hjá HAXA á laugardagskveld. Það var bara alveg ágætis skemmtan, þó að maturinn sem var á boðstólum hafi nú kannski ekki verið sá besti sem maður hefur smakkað! Grillsteikin hans Atla var nú betri sko... líka þessi sem brann :) en allavega... þá lét maður það ekkert á sig fá og sötraði bara bjór og hvítvín með, kannski ekki besta blandan but when you're gonna party it doesn't matter! Síðan var bara tekin stefnan í bæinn eftir tjúttið á ballinu og svo skakklappast heim á hælaskóm... strillarar hefðu sko verið vel þegnir þá, en hvað lætur maður sig ekki hafa þegar djammið er annars vegar.

Síðan er bara stefnan tekin á meiri skemmtan um helgina... djí... fólk fer ábyggilega að halda að maður eigi við eitthvað alkóhólistra-prúbblem að stríða... en nei nei... maður er bara að njóta lífsins :o) Hittingur hjá Spözzunum á fös og ammilli hjá bleikustu skvísunni í bænum á lau... gæti bara orðið skemmtileg helgi :)

Till next
JK