föstudagur, apríl 02, 2004

bévítans...

böö.... það er föstudagur og klukkan er 17:30 og ég var að mæta í skólann til að fara gera skýrslu.... leiðindi!!!! Vona bara að þetta verði búið sem fyrst, nenni nebblega engan veginn að vera hérna... tiltekt heima í kotinu er sko mun meira spennandi en þetta... irr pirr

Samt búin að vera bara aktív í dag, mætti meiraðsegja í tíma í morgun (samt ekki on-time) ;) og svo rumpaði ég einni efnagreiningartilraun af í dag! Jei... one to go og þá er þessum verklega hluta í þessu helv. fagi lokið! Væri réttast að skála fyrir því þegar síðustu tilrauninni lýkur en þar sem það verður á mánudagsmorguninn þá er eflaust réttast að bíða með það... svona fram yfir fjögur allavega :Þ vill einhver skála með mér?

Hugsa svo að þessi helgi verði bara tóm rólegheit, ætla vinna á morgun, þó það verði nú engin rólegheit því fólk þarf nú að kaupa "búsið" sitt fyrir djammið! Kvöldinu á allavega að vera eytt í notalegheit, ætla láta elda oní mig svo það verður fínt!

...en jæja... ætli það sé ekki bezt að fara kíkja á þennan skýrsluviðbjóð, svo ma'r verði ekki hér fram á nótt...
kv úr Öskjunni a.k.a. frystikistunni/"F.Su"/Náttúrufræðihúsinu
ykkar
Katrín