þriðjudagur, apríl 13, 2004

Catfight!!!

Ja hérna... sá þetta á mbl.is

Kona bitin til blóðs
Kona var bitin til blóðs af annarri konu við skemmtistað í miðbænum. Konan sem bitin var ætlaði að hjálpa hinni þar sem hún var að rífast við kærasta sinn. Nokkru síðar var konu ekið á slysadeild frá öðrum skemmtistað í miðbænum en þar hafði kona bitið hana í fingur og barið með flösku í höfuðið.

Þetta hefur nú aldeilis verið rifrildi í lagi! Það hlýtur að hafa verið eitthvað um hártog líka... :)
Aldrei sér maður samt eitthvað svona "action" þegar maður er í bænum, og ekki er það nú sjaldan ;o) myndi nú ekki vilja lenda í þessu!