fimmtudagur, apríl 22, 2004

Gleðilegt sumar :)

Gleðilegt sumar allir saman, og takk fyrir veturinn, vonum bara að sumarið sem er í vændum verði eins skemmtilegt ;)

Annars var veturinn kvaddur með stæl í gær :) kíkti á gæjana "Í svörtum fötum" á Broadway, alveg helvíti gaman, en að venju var smá drykkja í kotinu fyrst svona til að halda í hefðirnar ;)
Vona bara að Jónsi nái að trylla lýðinn þarna út í Tyrklandi eins og hann gerði í gær, unga ;) sem aldna. Þá verður það bara "ICELAND twelve points" :o)

Dagurinn í dag hefur síðan verið alveg brill. Ekta sumarveður, byrjar vel, svo maður skellti sér bara í sund og lét sólina sleikja á sér kroppinn ;o) svo var bara grillað og alles... hreint ekki slæmt.

En jæja... kveð í bili
sumarkveðja
JK