Helgi við skjáinn...
Jæja... nú verður átakið mikla. Ekkert miðbæjarrölt verður þessa helgina, né helgina eftir það og þarnæstu líka... :o( Sjónvarpsgláp og bjórfrítt líferni hefur tekið við! Maður á örugglega eftir að fá einhver fráhvarfseinkenni, svei mér þá... Æfði mig nú samt um síðustu helgi og gerði akkúrat not a thing síð. laugardagskvöld og mikið var það eitthvað dapurt kvöld :( og það stefnir í fleiri svoleiðis því prófin fara byrja bráðum. Hugsa samt að það verði ekki mikið af fólki í bænum í kvöld! Komu ekki það margir að versla í búðinni minni í dag og þeir sem komu voru flestir miðaldra kallar... Nema jú.... það liggja víst einhverjir handsome franskir sjóarar við höfnina... spurning hvort maður ætti að kíkja á þá!!!! Gæti orðið skemmtilegt :þ
