Hrotur í "Hlöðunni"
Jæja gott fólk! Nú er þessi yndislegi vorboði sem kallast PRÓF kominn á kreik, enn eina ferðina :o( ekki gaman að því sko! Þar af leiðandi einkennist líf manns nokkuð af bókalestri og öðrum námstengdum skemmtilegheitum og lítur maður girndaraugum til 14. maí þegar öllu þessu verður lokið... skal þá vera trallað!
Allavega lagði ég leið mína í þjóðarbókhlöðuna í dag og ætlaði nú að sýna dug minn og þor og fara læra. Tókst það svona með ágætum framan af morgni þar til að augnlokin fóru nú aðeins að síga og höfuðið fór að vera þyngra. Endaði þá bara með því að stelpan ætlaði aðeiiiiins að hvíla augun, klukkan bara 10:40 svo smá hvíld, rétt í 10 mín og lagði höfuðið á bókina.... "rúmum" 10 mín seinna ætla ég svo að fara halda lestrinum áfram og opna augun og kíki svona á klukkuna til að sjá hvað tímanum leið, en nei.... 11:40 ég hafði steinsofnað, með andlitið beint ofan í bókina í klukkutíma. Ennið var rautt eftir því og nærri sást blaðsíðutalið líka! Ákvað því bara að vera voða upptekin við lesturinn og leit ekki upp eftir þetta! Alltaf gaman að læra fyrir próf ;o)
Þannig að lærdómur dagsins var: fara snemma sofa í kvöld.
Nite nite
JK