Páskar...
Gleðilega páska allir! Vona að öllum eigi eftir að ganga vel að troða sig út af súkkulaði-eggjum... allavega þeim sem fengu einhver páskaegg. Ég ætlaði nú ekki að fá mér neitt en haldiði að það hafi bara ekki beðið eitt hérna eftir mér þegar ég kom heim... og þar að auki #5, hef nú ekki fengið svo stórt langa lengi! Var satt besta að segja bara komin í þessi baby-egg #3 ;) Svo að nú er bara að ráðast á súkkulaðið og þamba kók með ;) og reyna átta sig á þessum málshætti sem var... "Engum er alls léð né alls varnað" sem kemur víst úr Heilagra manna sögu!!!
Svo í tilefni þess að það eru páskar var tekin smá pása frá djammpásunni... manni var farið að kitla nett í fingurnar við að halda á köldum bjór og drekka hann yumm.... Kíkti nebblega á aðalfund HAXA á mið og kíkti svo níðrí bæ með henni Dóru gellu. Við tókum nú bæinn með trompi og kíktum á eina 10 staði held ég barasta og geri aðrir betur. Enduðum síðan eins og oft áður á Celtic og var bara fín stemmning þar... Svo var kíkt út aftur á Föstudaginn Langa svona af því maður var búin að vera svo "duglegur" að læra... ehemm... Hittum þar fyrir fullt af fólki eins og eina páskakanínu, einhverja úgglendinga og fleira skemmtilegt fólk og auðvitað A&A sem eru ætíð út á lífinu. En ætli maður hætti nú ekki í pásunni frá djammpásunni og fari að sökkva sér aftur í lærdóminn, búhú!
Næstu djömm á dagskrá* eru því:
# 14. maí = Próflokadjamm
# 15. maí = Eurovision
# sumarið... fullt að ske ;)
*) birt með fyrirvara um breytingar :)
Ble...