1 down, 2 to go
Jæja þá er einum hryllingnum lokið! Slagurinn við þróunarfræðitröllið er búinn og ég vona að ég hafi unnið hann... samt verð ég nú að segja að ég er hálf blá og marin, en vona bara það besta. Allt yfir 5 er plús!
Svo er bara að leggja í næstu árás, dýralífeðlisfræði, og það er enginn smá pakki :( maður verður bara að púla smá yfir þessu og þá hefst þetta allt saman. Get ekki beðið eftir 14.!!! Það er ljósið í þessu öllu saman, the djamm-day!
Annars er frekar lítið að frétta úr mínum herbúðum (skólabúðum). Dagarnir eru hver öðrum líkari, og alveg ansi hreint "skemmtilegir"! Held ég slóri nú samt bara í kvöld og taki því rólega, ætti nú samt að kíkja í bók en tja... bíður betri tíma ;)
till next
JK