þriðjudagur, maí 25, 2004

Plástrar

já... það er það sem lífsviðurværi mitt snýst um þessa daganna og á eftir að gera til sumarloka, að búa til plástra. Í gær fékk ég nefnilega aðeins meira krefjandi verkefni í vinnunni en ég hafði í síðustu viku, en svona fyrir þá sem ekki vita þá var það í basic atriðum að telja skrúfur, nagla og fleira skemmtilegt dót í pínu litla poka. Alveg braindead vinna, þannig að næst þegar þið kaupið ykkur húsgögn sem setja þarf saman og eruð með allar skrúfur, nagla og fl. í sérpakkaðar í poka þá var það einhver sem þurfti VIRKILEGA að sitja allan daginn og telja þetta í... sú manneskja sem gerir þetta allan daginn hlýtur að enda á mental institution. Allavega held ég að ég myndi gera það. Nema þá að ég geri það af öðrum orsökum, svefnleysi. Nátthrafninum mér finnst það nefnilega nærri lífsins ómögulegt að fara á fætur um "hánótt" (kl 6:20) til þess að fara í vinnuna, en lætur sig nú samt hafa það, því gulrótin í þessu öllu saman er að komast snemma heim úr vinnunni. Hvað gerir maður ekki til þess að geta notið sumarsins örlítið.

En ég ætla láta þetta nægja í bili, stutt & leiðinleg færsla, en ég bara verð að hvíla mig smá, var nærri farinn að dotta í bílnum á leiðinni heim!

þar til næst
JK