miðvikudagur, maí 19, 2004

...síðan síðast

Jæja elskurnar mínar! Það er nú orðið nokkuð síðan ég páraði eitthvað niður síðast. Það er nú bara alveg fullt búið að ske síðan þá, góðir og minna góðir hlutir.

Allavega var föstudagurinn alveg þrælfínn ;o) byrjaði nú bara á því eftir hádegið að redda mér vinnu í Össuri (stoðtækjaframleiðslu) svo að þar mun ég eyða sumrinu, reyndar ekki öllu því ég verð búin að vinna kl þrjú/fjögur á daginn þannig að mín á sko eftir að geta sleikt sólina og notið góða veðursins, þ.e.a.s. ef það verður gott veður. Nú jæja... eftir atvinnureddingu var náttúrulega tvöfalt tilefni til að fagna próflokunum með ;o) Kvöldið heppnaðist alveg frábærlega enda var maður orðinn nokkuð djammþyrstur eftir bókalestur og tilheyrandi leiðindi! Vonaðist maður nátt'lega eftir sömu skemmtan kveldið eftir en það fór svona fyrir ofan garð og neðan... en kva... þýðir lítið að svekkja sig yfir því... maður bíður bara eftir næsta djammi, verður vonandi betra!

Síðan skellti ég mér með fleiri skvísum til spákonu í gær ;o) Verst var reyndar að hún spáði í kaffibolla og mér finnst kaffi nú ekkert sérlega gott, en hvað lætur maður sig nú ekki hafa svona rétt til að svala forvitninni. Þetta var síðan bara hin skemmtilegasta spá sem maður fékk, núna er svo bara að bíða og sjá hvað gerist með tíð og tíma. Samt alveg merkilegt að geta gluggað í eitt stykki kaffibolla og séð svona hluti, því þessi "spákona" sem maður fór til hafði nú bara rétt fyrir sér í ansi hreint mörgu, hmmm...

Jæja, ætla fá mér smá bjútíslííp fyrir kveldið
síja honeys
JK