mánudagur, júní 07, 2004

Akureyrin c",)

Jæja nú er maður kominn aftur "heim" til Reykjavíkur eftir alveg þræl SKEMMTILEGA og vel heppnaða ferð til Akureyrar/Eyjafjarðarsveitar! Verð ég nú bara að segja að það er alveg þónokkuð langt síðan ég hef skemmt mér svona vel :o) Norðlendingarnir tóku vel á móti okkur "sveitaskvízunum" og sýndu margar áhugaverðar og skemmtilegar hliðar. Eins og okkur sæmir kíktum við auðvitað út á lífið því það átti jú að kíkja á markaðinn þarna nyrðra, verð ég að segja að úrvalið var bara hið besta, þó maður hafi nú ekki "verslað" neitt þá flugu samt nokkur blikk hér og blikk þar ;) enda hefur maður ekki í hyggju að gerast norðanmaður svo allt svoleiðis hefði bara flækt málin. Stelpurnar heilluðust þó af einum Norðlendingnum og skoraði hann Styrmir nokkuð mörg stig hjá þeim... Svo varð Ninnz líka ástfangin í ferðinni, reyndar af bleikum jakka, en það þarf ekkert að fylgja sögunni :o) Glimmergellan tók líka laugardaginn með trompi og djammaði svo mikið áður en farið var niðríbæ að hún bara sleppti því að fara og var lögst til svefns á undan 5 ára frænda mínum... he he he... (sorrý dóra) þannig að lítið varð úr pöbbarölti hjá henni það kvöldið. Þannig að ég og Ninnz skelltum okkur bara tvær ásamt fríðu föruneyti og skemmtum okkur líka svona þrusu vel :)

Vil ég bara þakka Steinunni frænku fyrir gistingu og frábæran félagsskap yfir helgina! Þetta verður endurtekið aftur, ekki spurning.

till next
JK