Ðe gúkk on the prikk :o)
...eða öllu heldur Gaukur á Stöng
Helgin var alveg hreint stór skemmtileg og vil ég þakka the djamm-pals fyrir stórskemmtilegt laugardagskvöld. Gaukurinn og menn í svörtum fötum klikkuðu ekki og var líka þessi fína stemning, vúbbí dú!!! Vorum við skvízurnar svo öflugar að við tókum meira að segja að okkur að "vinna" þarna, því starfsmenn vantaði í fatahengið á staðnum og því var nú bara um að gera að taka það að sér og auðvitað rukka fyrir þjónustuna ;o) Uppúr krafsinu hafðist andvirði eins bjórs og naut maður hans vel, enda búin að vinna fyrir honum :o)
Sunnudagurinn var svo tekinn frekar rólega. Í þynnkunni sá ég þennan svokallaða þátt með Nylon og jaminn... þetta getur ekki kallast sjónvarpsefni. Að fylgjast með einhverri hljómsveit fara í útvarpsviðtöl og kaupa föt er ekki alveg að virka, þessar stelpur eru ábyggilega hin bestu grey en held að maður eyði ekki meir af tíma sínum í að horfa á þetta sem þær eru gera. Þá held ég nú að EM í fótbolta sé betra og ekki er ég nú mikill bolta-bulla, því mér finnst ekki mjög gaman að horfa á einhverja kalla hlaupa fram & tilbaka eins og maður nokkur orðaði það, samt ótrúlegt hvað maður getur orðið hooked á hlutum sem manni hundleiðast.
JK