fimmtudagur, júní 03, 2004

Markaðurinn

Well well... lítið hefur verið um skrif á þessari síðu að undanförnu, má þar kenna um leti ritstjora hennar en hann hefur verið óvenju pennalatur þennan síðasta mánuðinn. Verð nú að fara bæta úr því! Ætlaði að fara og fá mér smá bjútíslíp þegar ég kom úr vinnunni en alltaf þurfa einhverjar framkvæmdir að vera í þessu djö... húsi sem trúbbla mann. Ekki nóg með að það heyrist allt á milli og meira heldur en maður vill heyra, þá þarf líka að vera að bora eitthvað og saga á daginn... irr pirr...

Nú hæst ber að nefna fyrir helgina er reisa "the buddettes" norður á bóginn. Ég ætla fara og skoða landið en einhver misskilningur hefur verið um tilgang þessarar ferðar og hélt gestgjafi okkar að við værum að fara skoða markaðinn (í þeirri merkingu að um alvöru markað væri um að ræða) og fór viðkomandi að lesa allar auglýsingar í blöðum þarna nyrðra til að athuga um hvaða markað væri um að ræða. Komst gestgjafinn svo síðar að því að skoða átti "markaðinn" í þeirri merkingu sem einhleypir nota :o) smá misó... Allavega hlakka ég til að fara, bæði til að skoða "markaðinn" og til að skoða í búðirnar, víhííí...

Læt heyra í mér síðar kæru lesendur
JK