Metrosexuality
Nú er enn ein helgin liðin með tilheyrandi skralli. Fór í afmæli hjá Ella í gær og var það bara hin fínasta skemmtun og endaði kvöldið svo á því að tjútta á NASA þar sem Paparnir voru að spila og ekki klikkuðu þeir frekar en fyrri daginn :o)
Annars hefur maður bara tekið því rólega síðustu daga. Fyrri part vikunnar naut maður veðurblíðunnar og baðaði sig í sólinni í algjörlega pökkuðum heita pott í laugardagslauginni, ljúft líf það og afraksturinn varð auðvitað rauðar kinnar og svei mér þá að ég held barasta að ég sé að rústa þessari sundbolafarskeppni all svakalega... stelpur þið verðið að fara taka ykkur á ;) reyndar hef ég smá forskot þar sem ég er búin svo snemma í vinnunni... na na na na naaaa naaa Talandi um vinnuna þá er ég búin að komast að því að vinnustaður minn er frekar byttuvænn staður. En á föstudaginn var bara blætt í bjór og blush á liðið (fyrir vel unnin störf) ekki slæmt það, en því miður gat ég ekki tekið mikinn þátt í gleðinni því mín beið vinna við að selja bjór svo maður tók bara með í "nesti". Spurning hvað hefði verið gert ef maður mætti bara létt á því í vinnuna... gæti bara sagt hafa verið að prófa vörurnar, gá hvort að það væri ekki örugglega í lagi með þetta og svoleiðis.
Að lokum verð ég að skamma karlþjóðina aðeins. Aumingja Dóra lenti í þeim hrakförum um daginn að það sprakk dekk hjá henni. Var ég í nágrenninu og kom til að rétta hjálparhönd þó svo að ég hafi nú aldrei skipt um dekk sjálf, þá mátti reyna. Og já.... aðfarir okkar að þessu voru vægast sagt hlægilegar og býst ég við að það hafi nokkrir staðið í stofuglugganum og hlegið að hvernig við bárum okkur að við verknaðinn, alla vega veit ég að það var gert á einu heimili. Allavega það kom ENGINN til að hjálpa okkur vesalingunum nema jú einn leigubílstjóri sem stoppaði hjá okkur, þegar við vorum búnar.... iss... Greinilegt er að sannir karlmenn eru vandfundnir og ætli þeir séu ekki bara flestir Metrosexual hér í höfuðborginni, einhverjar "sissís" sem bera á sig rakakrem og handáburð.