miðvikudagur, júlí 21, 2004

þetta gamla fólk og bílar...

Sumir  karlmenn segja að kvenfólk séu hinir verstu bílstjórar. Er ég nú ekki alveg sammála þessu þó það finnist nú konur hér og þar út í umferðinni sem taka óratíma í það að leggja í stæði (og leggja svo skakkt) eða keyra á móti manni í hringtorgi!!! (skil reyndar ekki hvernig það er hægt en hef orðið vitni að því, NB það var ekki ég) Semsagt sumar geta verið soldnir klaufar stundum, þar á meðal undirrituð, en hef nú ekki verðið með neinar hrikalegar gloríur út í umferðinni og AUÐVITAÐ eru það líka sumir kallar sem bara kunna ekki að keyra...

Allavega ég rakst á þessa frétt á mbl.is og vá... þessi gamli gaur hefur verið eitthvað tæpur á tauginni... ég hef allavega ekki verði lögð inn eftir að farþegar mínir hafi gengið í skrokk á mér eftir einhver glappaskot við akstur!

Over and out
JK