miðvikudagur, júlí 28, 2004

Steingeit en örugglega ekki fjallageit...

Heil og sæl!
   Haldiði að ég hafi bara ekki farið í fjallgöngu í gær! Við spazza-félagar drifum okkur úr skarkala borgarinnar út í "sveit" og fórum að berjast við að klifra/skríða/labba Esjuna! Á þessari göngu minni komst ég að því að maður er í vægast sagt lélegu formi og hjúff... þetta var ekki easy. Er alveg búin að sjá að ég stend ekki alveg undir "merki" (þ.e.a.s vera steingeit). En ég er þrjósk og bifaðist þetta nú áfram þó hægt færi.
   Þegar ég loks hélt að ég væri að vera komin vel á leiðarenda og komst svo að því að við vorum nú bara rúmlega hálfnaðar datt manni í hug endirinn á LOTR - föruneyti hringsins, þegar blasa við ægilegir fjallgarðar, þeim Fróða og félögum... :S Allavega leiddi Ásta "Frodo" okkur hina hobbitana upp (og mig Mordor, the evil eye,!!! ;o) ) ... eða hér um bil því undirrituð var orðin þjökuð af hælsæri rétt áður en á t0ppinn var komið svo maður lagðist bara í grasið og naut verðurblíðunnar meðan hinir fjallgöngufélagarnir klifu upp klettana... því ég meina ég vildi nú geta komist niður líka ;o)
Allavega var þetta voða gaman, og þegar blöðrunar eru farnar af hælunum þá bíður bara næsta fjall eftir manni!!
 
JK
alltaf á toppnum