Sviti & eyrasuð
Þessi orð eru mjög lýsandi fyrir gærkvöldið. En málið er að sveitastelpan skellti sér á tónleika í gærkveldi með dönsku rokkurunum í METALLICA... helvíti gaman alveg hreint, en djö... var loftlaust og heitt, hjúff... hef aldrei þurft að hafa eins lítið fyrir því að svitna eins og þarna og lak alveg af manni eins og maður hefði verið að púla á fullu í líkamsræktarstöð í marga klukkutíma, þegar maður hafði í raun aðeins staðið kyrr í smá tíma! Þegar svo herlegheitunum lauk gekk ég út úr Egilshöllinni rennblaut og með líka þetta skemmtilega eyrnasuð sem fylgdi manni svo í svefninn. En þetta var allt þess virði og vil ég bara þakka tónleikaferðafélugunum fyrir skemmtilegt kvöld, og Ella fyrir að vera dræver, svo við gætum nú fengið okkur smá öl fyrir herlegheitin ;o)
Svo vil ég óska Grikkjum til hamingju með sigurinn í EM, þeim að þakka að ég er nokkrum bjórum ríkari! (verða að monta mig smá) En það var sko smá bet í vinnunni um hverjir myndu vinna EM, á milli mín og einhverra stráka sem ég var að vinna með. Og þar sem ég hef ekkert vit á fótbolta og er stelpa þá sat ég uppi með að þurfa "veðja" á Grikkina, því auðvitað ætluðu strákarnir að vinna!!! En við vitum hvernig þetta fór og núna nýt ég bara bjórsins sem þær þurftu að blæða á mig... he he he... sweet!
En er stokkin út í sólina :o)
JK