Þykkvibær = Hollywood?
Jæja ég er komin aftur eftir smá pásu. Bloggerinn fór í einhverja fílu út í mig og var frekar ósamvinnuþýður, en er búin að kippa því í liðinn!
Ég var að frétta það að von er á einhverjum kvikmyndastjörnum heim í sveitina. Baltasar Kormákur þykist nefnilega ætla að taka upp einhverja mynd þarna í sveitinni, gaman að því bara. Svo að maður rekst kannski bara á einhverja fræga kalla þarna í haust! Vona allavega að þetta fari betur heldur en þegar hann var að taka upp fyrir austan og brenndi bara síldarvinnsluna... En allavega virðist litla krummaskurðið mitt henta vel í eitthvað svona. Verður forvitnilegt að sjá hvort að þetta verði sýnt sem eitthvað "ghost-town", staður sem einhverjir furðufuglar búa eða sem paradise on earth (sem ég reyndar stórefast um).
Síðan verð ég nú að segja að það var soldið skondið að lesa fréttablaðið í dag. Á forsíðunni stendur "Reynt var að þrífa blóðið í íbúðinni" í sambandi við þetta hvarf á konunni, þegar maður les svo fréttina stendur í lokin "...ekki fékkst staðfest hjá lögreglu að reynt hafi verið að þrífa burt blóð í íbúð eða bíl mannsins..." Döööö!!!! Stupid people.
þartil síðar
JK