laugardagur, ágúst 28, 2004

Back to school

jæja... sumarið bara búið :o(
Hætt í sumardjobbinu og bara skóli á mánudaginn, frekar snubbótt sumarfrí sem maður á! Allavega hefur þetta sumar alveg flogið framhjá manni, fannst ég bara rétt að byrja í fríi. Samt verður nú nice að fara aftur í skóla "letilífið"... maður verður samt að vera duglegur að stöddía svo maður endi ekki í þessari sumarprófa vitleysu all over again, og btw þróunarfræðiskrímslið er dautt... jahúúúú, steindrap það alveg, he he he...

Til að kveðja sumarið almennilega verður tekið vel á því í kvöld. Við skvízurnar í vinnunni ætlum að hittast og skála, vel og almennilega :o) Svo er það bara hit the town og sýna sínar bestu hliðar ;-)