miðvikudagur, ágúst 04, 2004

-----

jæja já... þá er þessi verslunarmannahelgi liðin. Verð ég nú að segja að hún hafi verið frekar frábrugðin þeim versló-helgum síðustu ára. Í fyrsta lagi fór ekki DROPI af áfengi inn fyrir mínar varir, ég var bara heima í sveitinni með parentsinu, í öðru lagi eyddi ég helginni í lærdóm :-( og í þriðja... tja þá var bara fílingurinn að fara eitthvað í útilegu = þjóðhátíð ekki til staðar. Merkilegt nokk. Held svei mér þá að ég sé bara að verða gömul, eða er bara komin með nóg af þessu djamm(veseni) í bili!!! sei sei sei... :þ
Allavega virtust bleika gellan og glimmmergellan skemmta sér vel á Akureyrinni og má með sanni segja að helgin hjá þeim hafi verið öllu viðburðameiri heldur en mín, sem einkenndist af bjórleysi, lærdóm, hjólaferðum og miklum svefni, iss...

JK
Kem öflug inn í djammið eftir prófin :o)