mánudagur, ágúst 30, 2004

Dísöööös....

Mætti í skólann núna áðan til að fara í fyrsta tímann minn þennan veturinn. Þetta byrjar nú ekki vel!!! Enginn prófessor kom til að lesa yfir okkur og lítur út fyrir að það verði enginn til að lesa yfir manni í þessum tiltekna kúrs sem skvízan ætlaði í, því hann verður víst ekki kenndur! Einhvern veginn hefur "gleymst" að segja okkur þekkingarþyrstu námsmönnum frá þessu!! Andsk... vesen #$%$%& Nú er taflan hjá manni öll í skralli og ýmislegt þarf að laga... aaarrrgg...