Finally
Jahúú!!!!
Loksins, eftir laaanga bið var djammið í bænum loksins skemmtilegt :o) Helgin var alveg tekin með trompi, farið út bæði kvöldin og haft það fínt langt fram eftir nóttu...
Byrjaði fös. á að kíkja í bless-grill til Heiðdísar, þar var frekar rólegt og sitið að spjalli. Eftir það átti "aðeins" að kíkja niðrí bæ á sumarslútt í vinnunni og já... þar var frír bjór í boði og skemmtilegt eftir því, ehemmm....
Laugardagurinn var algjört livin' hell, mætti í vinnuna til að selja bjór og var ágæt fyrirmynd um hvernig maður getur orðið daginn eftir fínt djamm.... sjæsis! "Frekar þreytuleg" voru orð sem ég fékk að heyra nokkrum sinnum yfir daginn. Mundi það allavega í vinnunni afhverju ég var hætt að djamma á föstudögum. Líðanin lagaðist þó þegar líða tók á daginn og um kvöldið var maður reddí í menningarnæturgírinn ;o) Kíkti á EGÓ á miðbakkanum og þeir voru nú ansi hreint góðir, sá vel hverju ég hafði misst af á þjóðhátið. (Verður pottþétt farið næsta ár!) Svo tók bara skemmtistaðarölt við og skemmtilegheit (og smá drykkja). Létum við Dóra plata eitthvað Berserkjabrennivín oní okkur, hjúff... skil ekki hvernig okkur datt í hug að láta barþjóninn plata okkur til að verzla það. En við erum hörkukonur og létum okkur hafa það, he he....
Vil bara þakka þeim sem maður hitti og djammaði með um helgina kærlega vel fyrir frábæra helgi :o)
Þetta voru skemmtileg moment.
Thanx
JK
