sunnudagur, ágúst 29, 2004

Gærkvöldið...

...var nú bara skemmtilegt! Sveitastelpan er bara öll að komast aftur í rétta djammgírinn og hefur ekkert nema gott um það að segja :-)
Skellti mér nú bara á Sólon í gær og má segja að ég danced my ass off í fínum félagsskap, fínasta mál það. Þetta verður sko endurtekið aftur.

Lærdómur gærkvöldsins var þessi:
- sveitastelpan ætti að fara drekka eitthvað annað en bjór á djamminu. Þessi guðdómlegi drykkur virðist ekki fara nógu vel í sakleysingjann... verð bara að finna mér einhvern annan drykk. Samt slæmt mál það að geta ekki drukkið bjór því hverju á maður þá að sumbla á í vísó-ferðum?

- útlenskir karlmenn eru alveg séééérlega tregir. Virðast engan veginn ekki að vera ná "hint-um" að maður hafi ekki áhuga og þeir eigi að hypja sig. Liggur við að maður þurfi að skrifa á ennið á sér "I don't like you". Þó er ég samt ekki að alhæfa að allir karlkyns útlendingar séu svona, þó þeir séu nú ansi margir sem ekkert skilja. Maður fer bara að halda að þeir fái bækling við komuna til landsins um hvernig nálgast eigi íslenskt kvenfólk og þó þær láti sem þær hafi ekki áhuga þá bara keep on going and don't give up... Irr pirr...