Hýrir & hýrir karlmenn
Eins og flestir tóku eftir sem eyddu helginni hér í borginni þá var þetta gay-pride helgin. Af því tilefni einkenndist bærinn soldið af því að maður sá svona fleira af "öðruvísi" týpum í bænum en maður gerir venjulega, ekkert nema gott um það að segja í sjálfu sér. Til dæmis skelltum við Ninnz og litla sys okkur í bíó á fös. á The Village, sem er hin ágætasta ræma by the way, og ætluðum svo að fá okkur einn öl eftir mynd þannig það var brunað down town. Fyrst við vorum soldið snemma í því voru nokkrir Laugavegs rúntar teknir og mannlífið skoðað og já... það var soldið öðruvísi. Fannst okkur að bærinn einkenndist af hópum miðaldra karlmanna sem voru greinilega að skemmta sér vel með öl í hönd og var lítið að sjá nema það.... :o( Var því öl-ferðin blásin af og bara brunað á aken taken því úrvalið var ekki það beisið down-town!
Laugardegi var svo eytt í mannbætandi shopping ferð og vá... I'm in Love, sá líka þessa flottu kápu sem mig langar svooo í, týmdi ekki alvega að splæsa í hana en hvað gerir maður ekki fyrir ástina þegar hún er annars vegar, maður verður ekki svona heppinn á hverjum degi ;)
Kvöldinu var svo eytt í smá bíltúr út í höfnina til að sækja Ninnz og koma henni til RVK. Fórum við í eitt það furðulegasta partý sem ég hef farið í á minni ævi, ja hérna hvað það var skrítið að vera þarna. Þetta var eiginlega svona had to be there moment en til að gefa ykkur smá nasaþef var þarna strákur með bjóst, stelpa í rauðri glansskyrtu, önnur stelpa sem var eins og gatasigti í framan, einhver kani af vellinum og já... bara spes lið. Var því fljótt flúið þaðan og kíkt á hann Ella sem sat á priki... Allavega var smá tíma eytt þar og svo bara brunað heim!
Í dag hef ég svo eytt degi í smá lærudóm og skyldu slúður með Ninnz og svo bíður bara þessi yndisaukandi þróunarfræði eftir manni, oj oj..
JK
farin að lesa :(
