fimmtudagur, ágúst 12, 2004

The Lazy Goat

Held það sé nokkuð ljóst að mér finnst ekki gaman að vera læra, hef sjaldan verið jafn dugleg að "blogga" einhverja vitleysu og núna síðustu daga þegar ég ætti að vera læra fyrir próf. Í stað þess að sitja með bók í hönd hef ég eytt dágóðum tíma í ráp á netinu og það eina sem ég hef komist að í dag er að ég er bæði steingeit í þessu venjulega stjörnumerkjadæmi og líka geit í kínverska stjörnumerkjadótinu. Hversu mikil geit get ég orðið?

Getur annars einhver sagt mér hvernig það er hægt að gera lófalestur online??? Ef einhver vill fá online palm readin getur hann farið hingað.
æ... leiðinleg færsla, eníveis
ble...

JK