miðvikudagur, ágúst 11, 2004

sól sól skein á mig...

...í allan dag :o)
Búin að vera njóta þessarar Miðjarðarhafs-stemmingu í allan dag, eða svo til! Sleikti sólina í pásum og matartíma í dag, auk þess sem maður naut þess að skoða sætu strákana í vinnunni bera að ofan og borða ís á meðan, ekki slæmt það :Þ Síðan eru þessir vinnuveitendur mínir svo frábærir að þeir leyfðu öllum að hætta snemma í dag svo maður skellti sér náttlega í sólbað. Svalirnar hjá Ninnz urðu að sóldýrkendastað þar sem setið var við slúður og lærdóm. Vantaði bara kaldan öllara og þá hefði þetta verið perfect! Bæti bara úr því núna, kaldur THULE í ísskápnum bíður mín grrr......

JK
rjóð í kinnum