mánudagur, ágúst 09, 2004

TV & food?

Oj! Komst að því gær að maður á ekki að fá sér að borða og vera að horfa á læknaþátt í sjónvarpinu um leið. Gerði það í gær þegar ég var að glápa á Presidio Med á S1. Ilmandi og rjúkandi heit pizza með pepp. & x-tra osti varð skyndilega ekkert voðalega freistandi þegar var verið að sýna einhvern magauppskurð og þarmar og alls kyns ullabjakk út um allt :S eeuugh, lét þar við sitja og 7up-ið dugði bara fínt!

Síðan á maður ekkert að vera slugsa með þennan lærdóm á vetruna og fara í sumarpróf. Það er BARA leiðinlegt og nokkuð ljóst að sá leikur verður ekki leikinn aftur!

over & out
JK