---
Eitthvað hafa þessir ólympíuleikar fatlaðra farið framhjá manni. Í sumar var varla hægt að komast hjá því að heyra eða sjá eitthvað um "venjulegu" ólympíuleikana en núna veit maður varla af þeim hjá þessum fötluðu. Sá þó síðustu samantektina frá leikunum í gær. Fótbolti blindra er eitthvað sem er soldið fyndið að sjá. Einhverjir gaurar með bundið fyrir augun, svo þeir sjái ekki því þeir eru jú blindir, hlaupandi um sparkandi í einhvern bjöllubolta með hreint ágætist tilþrifum stundum. Ótrúlegt samt hvað þeir geta, ef ég væri í þessu væri ég ábyggilega hlaupandi á meðspilarana, dettandi um boltann og myndi alltaf sparka útaf. Allavega er þetta skemmtilegra sjónvarpsefni en íslenski fótboltinn. OMG hvað hann er leiðinlegur, þar hrúgast alltaf allir leikmennirnir í markið, sparkandi eitthvað út í l0ftið, svona hálfgerð "vindspörk" og aldrei skora þeir mark þó þeir standi hérumbil í markinu!!! Segji ég því bara GO BLINDIR!
Hah! Svo á smá nef-váfri í gær fann ég síðu sem segir hver vinnur Americas Next Top Model. Sú sem ég hélt með vann!!! Ef þið viljið vita meira, click here :0)
Hah! Svo á smá nef-váfri í gær fann ég síðu sem segir hver vinnur Americas Next Top Model. Sú sem ég hélt með vann!!! Ef þið viljið vita meira, click here :0)
