Góður dagur?
Dagurinn hefur byrjað á typical Katrínar hátt. Þeir sem þekkja mig vita að ég og klukkur + stundvísi eigum ekkert voðalega vel saman og oftar en ekki er ég alveg á síðasta snúning þegar ég á að vera mætt eitthvað. Nú eins og ég var búin að minnast eitthvað á var stundataflan mín eitthvað leiðinleg, tveir kúrsar rekast á hjá mér og eru þeir í fyrsta tíma á miðvikudögum. Smá vesen var með þetta því skyldumæting er í annan, en vont að missa af fyrsta tímanum í hinum þar sem það eru verklegir tímar og maður þarf að fá díteils um það. Svo að ég ætlaði bara að mæta í þá báða og skipta bara um stofu í hléi.
Þegar ég svo loks ætla fara þramma út í Öskju (sem er btw fyrir utan stofugluggan hjá mér) ætla ég aðeins að tékka á stundatöflunni, svona í hvaða stofu maður eigi nú að vera. Shit! Fyrri tíminn á að vera út í VR en ekki sveskjunni, damn. En fyrst ég er með gamla útprentun af stundatöflunni vil ég nú vera alveg sure og tékka á þessu á netinu. Tölvan virðist ætla taka forever að starta sér... týpískt þegar maður er að bíða. Jú... það kemur svo í ljós að þetta er út í VR. Planið um að vera á tveim stöðum í einu farið út um þúfur, því ég hugsaði mér nú bara að labba á milli stofa til að skipta um tíma, ekki BYGGINGA. Hrmf... Seint og síðar meir fer ég svo af stað. Þegar loks er komið út í VR sé ég að ég er frekar sein og frekar hallærislegt að mæta þar of seint í tíma og sitja þar í nokkrar mín. og fara strax aftur því ég þarf að vera mætt í Öskjuna kl 8:50 (skyldumæting þar). Þá verður bara change of plans... trítla bara framhjá VR húsinu (soldið aulalegt) og hingað í Öskju þar sem ég sit og bíð eftir hinum tímanum að byrja.
Er þetta ekki bara alveg týpísk ég?