Hangs...
Lítið er að gerast á vígstöðvunum núna. Eyði bara deginum í hangs við tölvuskjáinn og "gelti" svona inn á milli, er nefnilega búin að ná mér í einhvern kverkaskít sem ég fæ ekkert við ráðið. Búin að vera sötra á einhverri hóstamixtúru sem virðist lítið annað gera en að auka á geltið svo það er bara að bíða og sjá hvort þetta fari ekki.
Ég er svo búin að komast að því að eftir því sem lengra maður er komin í skólakerfið og námið verður þyngra því minna er maður í skólanum. Þegar ég var t.d. í fjölbraut var maður flest alla daga frá 8 til 4, reyndar með götum inn á milli, og svo var allur heimalærdómur eftir. Núna aftur á móti þegar maður er kominn í háskólanám mætir maður í skólann svona klukkutíma og klukkutíma og eyðir mest öllum deginum heima. Held að ég hafi bara svei mér þá aldrei þurft að mæta eins lítið í skóla og núna þessa önn þó maður sé á lokaári. Svo þegar maður hefur nógan tíma til að læra eitthvað þá náttúrulega kemur maður sér aldrei af stað, því maður hefur "nógan tíma seinna"!
Jæja, ekki seinna vænna að fara lesa eitthvað
JK