Háskaför í Öskjuhlíðinni
...og þó!
Sökum síður skemmtilegrar niðurstöðu í the fatty% þess skemmtilega viðburðar að kvefpúkinn virðist vera yfirgefa mig -loksins- þá ákváðu ég og göngugarpurinn Hafdís að skella okkur í smá labbitúr í gær! Höfum við nú oft þrammað sólrík sumarkvöld um Ægissíðuna og Nauthólsvík umkringdar ástföngnu fólki, brjálæðingum á hjólum og línuskautum og hálfnöktum hlaupagörpum og hefur þrammið alltaf gengið þrautalaust fyrir sig og alltaf höfum við ratað heim! Í gær "gegnum við lengra" þ.e. fórum aðra leið en höfum áður farið, sko til baka! Þar sem við erum saklausar sveitastúlkur á ferð og engu öðru vanar en víðfemri náttúrunni og fuglasöng þá getur það reynst sakleysingjunum nokkuð erfitt að rata í brjáluðu Reykjavík! Jæja, þegar var svo haldið áfram og brugðið aðeins af leið þá var aðeins erfitt að rata því öllum labbileiðum er búið að loka... helv... Hringbrautin. Lá síðan leið okkar upp í Öskjuhlíð eftir hlykkjóttum leiðum. Þegar við vorum svo komnar upp á "hólinn", þá var spurningin, hvar fer maður niður? Sko ég veit að það er fullt af göngustígum þarna tvist og bast en þegar maður ætlar að fara einn þá auðvitað finnur maður hann ekki! Enduðum við því að ganga út um alla hlíð, leitandi að einhverjum boðlegum stígum. Að lokum rákumst við svo á einn boðlegan og héldum leið okkar áfram. Töldum við okkur vera búnar að leysa úr öllum rat-vandamálum.
Þegar loks var komið aftur á kunnulegar slóðir, Hringbrautina, tók ekki betra við! Alls staðar er búið að grafa allt í sundur, drullupollar hér og þar, sem maður fer nú ekki að sulla í í fínu strillurunum sínum, háskalegir göngustígar og brjálaðir bílstjórar. Möguleikinn á að spjalla var líka ekki lengur fyrir hendi því þar þurfti að öskra á milli, sökum hávaða á þessari háskabraut. En eins og sönnum sveitastúlkum sæmir stikluðum við á milli hindranna og komumst klakklaust heim. Smá göngutúr var orðinn að tæplega 2 klst göngu! uss....
Held ég láti bara Ægissíðuna duga næst!
Svo er það bara Akureyri á morgun :)